Starfsemi

SORPA bs. er rekin með umhverfi, samfélag og hagkvæmni að leiðarljósi. Samkvæmt rekstrarreikningi félagsins var hagnaður tímabilsins 330.939.563 kr. og nam hrein eign félagsins í lok tímabilsins 4.996.372.275 kr.

Gaja -

gas- og jarðgerðarstöð

Gangsetning gas- og jarðgerðarstöðvar SORPU (GAJA) markaði tímamót í meðhöndlun úrgangs á höfuðborgarsvæðinu. Bygging GAJU er stærsta verkefni SORPU frá því fyrirtækið hóf starfsemi árið 1991. Tilkoma GAJU er einnig bylting í meðhöndlun heimilisúrgangs á höfuðborgarsvæðinu.
Móttekinn úrgangur
22.637 tonn
Framleiðsla á metani
641.036 Nm3

Góði hirðirinn -

nytjamarkaður

Góði hirðirinn er nytjamarkaður sem hefur það að markmiði að endurnýta og draga úr sóun. Öll jákvæð rekstrarafkoma fer til styrktar góðgerða. Verslanir Góða hirðisins eru á tveimur stöðum í Reykjavík auk vefverslunar.
Fjöldi seldra muna
843.314

Efnismiðlun -

Efnismiðlun Góða hirðisins

Efnismiðlun Góða hirðisins er markaður fyrir notuð byggingarefni og ýmsar vörur sem geta nýst til framkvæmda og listsköpunar. Markaðurinn er staðsettur á tveimur endurvinnslustöðvum, á Sævarhöfða og við Breiðhellu. Tilgangur markaðarins er að koma efni í endurnýtingu áður en það fer til endurvinnslu.
Fjöldi seldra vara
19.326

Endurvinnslustöðvar

SORPA rekur 6 endurvinnslustöðvar sem taka á móti flokkuðum úrgangi. SORPA rekur líka grenndarstöðvar á 89 stöðum á höfuðborgarsvæðinu.
Móttekið magn
52.849 tonn
Hlutfall til endurnýtingar
67 %
Hlutfall til urðunar
33 %

Gufunes -

móttöku og flokkunarstöð

Til móttöku- og flokkunarstöðvar berst mikið magn af flokkuðum endurvinnsluefnum eins og pappír, bylgjupappa og plasti. Þessi efni eru bögguð og send til frekari flokkunar og endurvinnslu erlendis og innanlands. Í móttökustöðinni er einnig meðhöndlaður blandaður heimilisúrgangur og m.a. eru lífræn efni aðgreind frá öðrum og flutt til metanvinnslu í GAJU.
Móttekið magn
91.145 tonn
Breyting milli ára
-2,6 %

Álfsnes -

Urðunarstaður

Urðunarstaður höfuðborgarsvæðisins er í Álfsnesi en þar er tekið á móti heimilis- og rekstrarúrgangi auk annars úrgangs. Þar er einnig rannsóknaraðstaða og skógrækt.
Móttekið magn
156.208 tonn
Breyting milli ára
-11,8 %